Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi hefur verið stórframleiðandi á laxi og bleikju í yfir 20 ár og rekur eingöngu landeldisstöðvar.
Í undirbúningi er ný og glæsileg landeldisstöð sem mun framleiða 40.000 tonn af hágæðalaxi með nýjustu tækni sem völ er á. Staðsetning stöðvarinnar í Auðlindagarðinum á Reykjanesi skapar einstök tækifæri til fullnýtingar orkustrauma m.a. frá jarðvarmavirkjunum. Markmið verkefnisins er að framleiða lax með lágt vistspor með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi. Allt framleiðsluferlið verður á sama stað, frá innsetningu hrogna að fullunnum hágæðaafurðum.
Umsjónarmaður verksamninga á sviði rafbúnaðar
Umsjónarmaður verksamninga á sviði rafbúnaðar leiðir og ber ábyrgð á þróun, innleiðingu og eftirliti með rafmagnstengdum verkþáttum. Umsjónarmaður verksamninga á sviði rafbúnaðar vinnur náið með rafmagnshönnuðum, verktökum og framleiðsluaðilum til að tryggja að rafbúnaður sé hannaður og settur upp í samræmi við öryggiskröfur, staðla og verkáætlanir.
Umsjónarmaður verksamninga sér um að skipuleggja og samhæfa alla verkþætti rafmagns, þar á meðal hönnun, uppsetningu, prófanir og afhendingu, og leysir úr vandamálum sem upp koma í tengslum við rafbúnað.
Umsjónarmaður verksamninga á sviði rafbúnaðar heyrir undir verkefnastjóra rafbúnaðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð og umsjón með gerð verksamninga, yfirferð og samþykki innan verksviðs.
- Tryggja að verksamningar séu í samræmi við lög, reglugerðir og stefnu fyrirtækisins.
- Framkvæmd áhættugreiningar á samningum, þ.m.t. fjárhagslegt mat og áhættustýring.
- Eftirlit með framgangi verkefna í samræmi við samningaskilyrði.
- Samræma og stýra verklagi við samningagerð og eftirfylgni.
- Halda utan um skjalavistun og öll formleg gögn sem varða samninga.
- Úrvinnsla ágreiningsmála sem upp koma vegna samninga.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Haldbær reynsla af samningagerð, reynsla af samningagerð á sviði framkvæmda er kostur.
- Þekking á vélbúnaði og regluverki varðandi hann.
- Færni í samskiptum og samvinnu.
- Góð enskukunnátta og hæfni til að vinna í alþjóðlegu umhverfi.
- Skipulagshæfni og nákvæmni.
Advertisement published8. October 2024
Application deadline21. October 2024
Language skills
EnglishVery good
Location
Auðlindagarðurinn
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (8)
Innkaupa- og samningastjóri
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri hönnunar
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri BIM
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri vélbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri mannvirkja
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri rafbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði vélbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði mannvirkja
Samherji Fiskeldi
Similar jobs (12)
Ert þú frábær rafvirki og hefur áhuga á að slást í hópinn
Rafmiðlun
Starfsmaður í viðhaldsdeild á Dalvík
Samherji Dalvík
Sogsstöðvar, rekstur og viðhald aflstöðva
Landsvirkjun
Fageftirlit rafbúnaðar
Landsnet hf.
Tæknimaður,viðgerðir,þjónusta Elevator/Installer/Technician
Íslandslyftur ehf
Vélfræðingur
GEA Iceland ehf.
Austurland-Tæknistarf á ferðinni
Securitas
Rafvirki á Austurlandi
Landsnet hf.
Sérfræðingur í stafrænni þróun flutningskerfis raforku
Landsnet hf.
Sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis
Landsnet hf.
Tæknileg þjónusta
Rafal ehf.
Rafvirkjar og rafveituvirkjar óskast
Rafal ehf.