Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi hefur verið stórframleiðandi á laxi og bleikju í yfir 20 ár og rekur eingöngu landeldisstöðvar.
Í undirbúningi er ný og glæsileg landeldisstöð sem mun framleiða 40.000 tonn af hágæðalaxi með nýjustu tækni sem völ er á. Staðsetning stöðvarinnar í Auðlindagarðinum á Reykjanesi skapar einstök tækifæri til fullnýtingar orkustrauma m.a. frá jarðvarmavirkjunum. Markmið verkefnisins er að framleiða lax með lágt vistspor með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi. Allt framleiðsluferlið verður á sama stað, frá innsetningu hrogna að fullunnum hágæðaafurðum.
Verkefnastjóri mannvirkja
Við leitum að öflugum og skipulögðum einstaklingi í starf verkefnastjóra á sviði mannvirkja. Viðkomandi ber ábyrgð á gerð og stýringu verksamninga innan mannvirkjagerðar og uppbyggingar. Verkefnastjóri tryggir að samningar séu gerðir í samræmi við lagalegar kröfur, aðferðarfræði og stefnu fyrirtækisins.
Verkefnastjóri verksamninga fylgir því eftir að samningar uppfylli öryggis- og gæðakröfur, kostnaðar- og tímaáætlanir. Þetta felur í sér að vinna nána samvinnu með verkefnastjóra, hönnunarstjóra, verkfræðingum og öðrum lykilstjórnendum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og framkvæmd mannvirkjaverkefna, þar með talið áætlunargerð, kostnaðareftirlit og tímasetningar.
- Samhæfing við alla samstarfsaðila, þar á meðal verktaka, ráðgjafa og hönnunarteymi.
- Eftirlit með gæðum og samræmi framkvæmda við hönnunarforsendur og reglugerðir.
- Úrvinnsla og úrlausn tæknilegra og verklegra vandamála sem koma upp í framkvæmdarferlinu.
- Greining áhættuþátta og mótun aðgerðaáætlana til að lágmarka áhættu.
- Umsjón með útboðum og mati á tilboðum frá verktökum og birgjum.
- Reglubundin skýrslugjöf um framvindu, frávik og gæðamál til stjórnenda.
- Samskipti við eftirlitsaðila og stjórnvöld til að tryggja að framkvæmd sé í samræmi við lög og reglur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í byggingarverkfræði, mannvirkjagerð eða skyldum greinum, sem nýtist í starfi.
- Haldbær reynsla af stjórnun umfangsmikilla byggingaverkefna.
- Góð þekking á byggingarreglugerðum og regluverki.
- Reynsla af útboðs- og samningagerð.
- Færni til að vinna sjálfstætt og í teymi undir álagi.
- Skipulagshæfni og geta til að stýra mörgum verkþáttum samtímis.
- Framúrskarandi leiðtogafærni, samskiptahæfni og færni í að leysa ágreiningsmál.
Advertisement published8. October 2024
Application deadline21. October 2024
Language skills
EnglishVery good
Location
Auðlindagarðurinn
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (8)
Innkaupa- og samningastjóri
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri hönnunar
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri BIM
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri vélbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri rafbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði vélbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði mannvirkja
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði rafbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Similar jobs (12)
Ert þú framsýnn og öflugur verkefnastjóri?
Fastus Heilsa
Verkefnastjóri birgða
Lyf og heilsa
Verkefnastjóri í Endurmenntun HÍ
ENDURMENNTUN HÍ
Verkefnisstjóri mannauðsmála
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands
Hönnun og eftirlit á Vesturlandi
EFLA hf
Lætur þú verkin tala?
Bændasamtök Íslands
Verkefnastjóri nýframkvæmda
Valsberg Mannvirkjalausnir
Verkstjóri / Smiður
Alva Capital ehf
Sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs
Húnaþing vestra
BIM-sérfræðingur / ráðgjafi
Optimum
Viðskiptastjóri á fagsölusviði
Húsasmiðjan
Project Manager
Coripharma ehf.