Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi hefur verið stórframleiðandi á laxi og bleikju í yfir 20 ár og rekur eingöngu landeldisstöðvar.
Í undirbúningi er ný og glæsileg landeldisstöð sem mun framleiða 40.000 tonn af hágæðalaxi með nýjustu tækni sem völ er á. Staðsetning stöðvarinnar í Auðlindagarðinum á Reykjanesi skapar einstök tækifæri til fullnýtingar orkustrauma m.a. frá jarðvarmavirkjunum. Markmið verkefnisins er að framleiða lax með lágt vistspor með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi. Allt framleiðsluferlið verður á sama stað, frá innsetningu hrogna að fullunnum hágæðaafurðum.
Verkefnastjóri vélbúnaðar
Við leitum að öflugum og skipulögðum einstaklingi í starf verkefnastjóra vélbúnaðar á sviði vélbúnaðar. Viðkomandi ber ábyrgð á gerð og stýringu verksamninga varðandi vélbúnað. Verkefnastjóri tryggir að samningar séu gerðir í samræmi við lagalegar kröfur, aðferðarfræði og stefnu fyrirtækisins.
Verkefnastjóri vélbúnaðar fylgir því eftir að samningar uppfylli öryggis- og gæðakröfur, kostnaðar- og tímaáætlanir. Þetta felur í sér að vinna nána samvinnu með verkefnastjóra, hönnunarstjóra, verkfræðingum og öðrum lykilstjórnendum.
Verkefnastjóri vélbúnaðar heyrir undir staðarverkfræðing.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með þróun og hönnun vélbúnaðarlausna.
- Samstarf við hönnuði, framleiðendur og verktaka til að tryggja samræmi við hönnunarforsendur.
- Eftirlit með uppsetningu, prófunum og gangsetningu vélbúnaðar.
- Greining á orkunýtingu og tækniþáttum vélbúnaðar til að hámarka afköst.
- Þróun viðhaldsáætlana og eftirlit með vélbúnaði til að tryggja stöðuga virkni.
- Skipulagning og framkvæmd áhættugreininga fyrir vélbúnaðaruppsetningar.
- Lausn tæknilegra vandamála og viðbrögð við óvæntum uppákomum.
- Samskipti við eftirlitsaðila og skýrslugjöf til stjórnenda um framvindu og ástand kerfa.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í vélaverkfræði eða tengdum greinum.
- Haldbær ára reynsla af stjórnun vélbúnaðarverkefna og véltækni í umfangsmiklum verkefnum.
- Þekking og reynsla af hönnun og uppsetningu vélbúnaðarlausna í stærri manvirkjum.
- Fagleg þekking á viðhaldsstjórnun og rekstri vélbúnaðar.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að leiða þverfagleg teymi.
- Góð greiningar- og skipulagshæfni ásamt lausnamiðuðu hugarfari.
Advertisement published8. October 2024
Application deadline21. October 2024
Language skills
EnglishVery good
Location
Auðlindagarðurinn
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (8)
Innkaupa- og samningastjóri
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri hönnunar
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri BIM
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri mannvirkja
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri rafbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði vélbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði mannvirkja
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði rafbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Similar jobs (12)
Ert þú framsýnn og öflugur verkefnastjóri?
Fastus Heilsa
Starf við sölu og ráðgjöf á lækningatækjum
Fastus Heilsa
Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Olís ehf.
Verkefnastjóri birgða
Lyf og heilsa
Fageftirlit rafbúnaðar
Landsnet hf.
Verkefnastjóri í Endurmenntun HÍ
ENDURMENNTUN HÍ
Verkefnisstjóri mannauðsmála
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands
Sérfræðingur í stafrænni þróun flutningskerfis raforku
Landsnet hf.
Sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis
Landsnet hf.
Hönnuður í teymi þéttbýlistækni á Suðurlandi
EFLA hf
Hönnun og eftirlit á Vesturlandi
EFLA hf
Lætur þú verkin tala?
Bændasamtök Íslands