Sérfræðingur í stafrænni þróun flutningskerfis raforku
Viltu móta raforkukerfi framtíðarinnar?
Við hjá Landsnet leitum að sérfræðingi í stafrænni þróun flutningskerfis raforku til að ganga til liðs við okkur!
Í starfinu muntu vinna að innleiðingu nýjustu tæknilausna og þróun á stjórn- og varnarbúnaði raforkukerfisins ásamt frábæru teymi sérfræðinga sem leggja áherslu á nýsköpun og sjálfvirknivæðingu.
Um starfið
Þú munt sjá um þróun og innleiðingu á nýrri tækni í stjórn- og varnarbúnaði, auk sjálfvirkni- og snjallnetsvæðingar. Verkefnin fela einnig í sér stjórnun á gögnum og upplýsingum, fjarskiptatækni og rekstur stjórn- og varnarbúnaðar. Starfið er fjölbreytt og krefjandi með mikilli áherslu á nýsköpun og stöðuga þróun.
Sjá einnig skemmtilegt myndband um snjallvæðingu orkukerfisins hér.
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði eða tæknifræði.
- Býr yfir mikilli tölvukunnáttu; þekking á forritun og netsamskiptum er kostur.
- Hefur þekkingu á stjórn- og varnarbúnaði.
- Er lausnamiðaður og góður teymisfélagi með frumkvæði og skipulagshæfileika.
- Marktæk reynsla af svipuðu starfi er kostur
Við bjóðum þér
- Skemmtilegt og sveigjanlegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og margt fleira.
- Stöðuga þjálfun og fræðslu til starfsþróunar.
- Starf sem skiptir máli fyrir samfélagið!