Húnaþing vestra
Húnaþing vestra er staðsett miðja vegu milli Akureyrar og Reykjavíkur. Hvammstangi er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins með um 600 íbúa en heildarfjöldi íbúa er um 1.220.
Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig, metnaðarfullt leik-, grunn- og tónlistarskólastarf ásamt því að rekin er dreifnámsdeild frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á staðnum.
Gott framboð er af íþrótta- og tómstundastarfi. Sveitarfélagið er útvistarparadís, með góða sundlaug, íþróttahús og fjölbreytt félagsstarf. Blómlegt menningarlíf er til staðar. Hjá sveitarfélaginu starfa um 120 manns.
Sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs
Húnaþing vestra leitar að öflugum og drífandi leiðtoga til að leiða umhverfis-, veitu- og framkvæmdasvið sveitarfélagsins. Meginverkefni sviðsins eru nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni á vegum sveitarfélagsins, rekstur og viðhald veitukerfa, umhverfis- og hreinlætismál, umsjón með fasteignum í eigu þess ásamt reksturs þjónustumiðstöðvar. Sviðsstjóri heyrir beint undir sveitarstjóra og situr í framkvæmdaráði sveitarfélagsins.
Um fullt starf er að ræða með starfsstöð í ráðhúsi Húnaþings vestra á Hvammstanga.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Yfirumsjón og ábyrgð á fjármálum og rekstri sviðsins, þ.m.t. gerð fjárhagsáætlunar og starfsmannahald.
- Stefnumótun og áætlanagerð fyrir málaflokka sviðsins í samstarfi við yfirstjórn.
- Ábyrgð á rekstri veitukerfa sveitarfélagsins, s.s. vatns-, frá-, og hitaveitu.
- Ábyrgð á umhverfis-, hreinlætis- og úrgangsmálum sveitarfélagsins.
- Ábyrgð á rekstri hafnar og þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins.
- Umsjón með undirbúningi útboða og verðfyrirspurna í tengslum við verklegar framkvæmdir.
- Ábyrgð á verkefnastjórnun ný- og viðhaldsframkvæmda sveitarfélagsins ásamt kostnaðareftirliti.
- Seta í framkvæmdaráði Húnaþings vestra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. í verk-, bygginga- eða tæknifræði eða meistararéttindi í iðngrein sem tengist störfum sviðsins. Framhaldsmenntun er kostur.
- Víðtæk og farsæl reynsla af rekstri, stjórnun, verkefnastjórnun og verkstjórn.
- Reynsla af áætlanagerð, samningagerð og kostnaðareftirliti.
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
- Reynsla og þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga og lögum og reglugerðum sem varða starfsemi sviðsins er æskileg.
- Reynsla af rekstri dreifikerfa veitna og verklegra framkvæmda er æskileg.
- Leiðtogahæfni og reynsla af breytingastjórnun.
- Rík þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæði, skipulagshæfni, árvekni og nákvæmni í störfum.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjungar.
Advertisement published16. October 2024
Application deadline31. October 2024
Location
Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstangi
Type of work
Skills
Financial planningPlanningPublic administrationPersonnel administrationBusiness strategy
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Ert þú framsýnn og öflugur verkefnastjóri?
Fastus Heilsa
Drekadalur - Deildarstjórar
Reykjanesbær
Drekadalur - Kennarar
Reykjanesbær
Móttökustjóri
Hreyfing
Forstöðumaður Raunvísindastofnunar HÍ
Háskóli Íslands
Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Olís ehf.
Verkefnastjóri birgða
Lyf og heilsa
Félagsráðgjafi í deild virkni og ráðgjafar á Norðurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Fageftirlit rafbúnaðar
Landsnet hf.
Verkefnastjóri í Endurmenntun HÍ
ENDURMENNTUN HÍ
Verkefnisstjóri mannauðsmála
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands
Áhættustjóri
Birta lífeyrissjóður