Birta lífeyrissjóður
Birta lífeyrissjóður er fjórði stærsti lífeyrissjóður landsmanna ef miðað er við hreina eign til greiðslu lífeyris. Sjóðurinn starfar samkvæmt samþykktum sem samþykktar eru á ársfundi hans og síðan staðfestar af fjármálaráðuneytinu í samræmi við lög nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Áhættustjóri
Við leitum að framsýnni manneskju með yfirgripsmikla þekkingu á áhættustjórnun, sem býr yfir reynslu og þekkingu á viðfangsefninu. Áhættustjóri hefur forystu um framþróun um áhættustýringarstefnu og skýrslugerð til fjölbreyttra hagaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með skipulagi og framkvæmd áhættustýringar og innra eftirlits.
- Umsjón með mótun áhættustýringarstefnu.
- Eftirlit með áhættustefnu og áreiðanleika gagna.
- Gerð skýrslna og annara gagna fyrir stjórn, stjórnendur og eftirlitsaðila.
- Heildarsýn yfir verkferla, áhættumöt, skýrslur innri endurskoðanda og innri úttektir.
- Utanumhald eftirlitskerfis og þátttaka í umbótaverkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur.
- Hæfni í að greina tölulegar upplýsingar og setja þær fram með skipulögðum hætti.
- Reynsla af greiningarvinnu og/eða áhættustýringu sem nýtist í starfi.
- Reynsla af gagnavinnslu og viðskiptagreindartólum (s.s. Power BI og Tableau).
- Reynsla af fjármálamarkaði og/eða þekking á lífeyrisstarfsemi er kostur.
- Frumkvæði, metnaður og drifkraftur.
- Sjálfstæði, fagleg og öguð vinnubrögð.
- Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni.
- Hæfni til að koma frá sér efni í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Advertisement published7. October 2024
Application deadline20. October 2024
Language skills
EnglishVery good
IcelandicVery good
Location
Sundagarðar 2, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Verkefnastjóri öryggis- og gæðamála
Sorpa bs.
Leikskólastjóri - Tjarnarás
Hafnarfjarðarbær
Stöðvarstjóri - Akureyri
Terra hf.
VERSLUNARSTJÓRI
Flying Tiger Copenhagen
Sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs
Húnaþing vestra
Program Support Officer
Marine Stewardship Council (MSC)
Skrifstofustjóri skrifstofu fjármála í heilbrigðisráðuneytin
Heilbrigðisráðuneytið
MRO & CAPEX Director
Embla Medical | Össur
Yfirmaður þrifadeildar / Housekeeping manager
Íslandshótel
Yfirþjálfari yngri flokka
Breiðablik
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Heimavist MA og VMA
Manager Safety
PLAY