Samherji Fiskeldi
Samherji Fiskeldi hefur verið stórframleiðandi á laxi og bleikju í yfir 20 ár og rekur eingöngu landeldisstöðvar.
Í undirbúningi er ný og glæsileg landeldisstöð sem mun framleiða 40.000 tonn af hágæðalaxi með nýjustu tækni sem völ er á. Staðsetning stöðvarinnar í Auðlindagarðinum á Reykjanesi skapar einstök tækifæri til fullnýtingar orkustrauma m.a. frá jarðvarmavirkjunum. Markmið verkefnisins er að framleiða lax með lágt vistspor með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi. Allt framleiðsluferlið verður á sama stað, frá innsetningu hrogna að fullunnum hágæðaafurðum.
Innkaupa- og samningastjóri
Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi til að gegna starfi innkaupa- og samningastjóra. Innkaupa- og samningastjóri ber ábyrgð á því að þróa, innleiða og stýra innkaupastefnu verkefnisins. Hann tryggir að innkaup séu hagkvæm, markviss og samræmist stefnu fyrirtækisins um gæði. Starfið krefst aðkomu að samningagerð við birgja, aðfangastýring og framkvæmd áhættumats á innkaupum.
Innkaupa- og samningastjóri vinnur náið með öðrum deildum til að tryggja samræmi og aðlögun innkaupa við aðrar stefnumótandi ákvarðanir verkefnisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróa og innleiða heildstæða innkaupastefnu.
- Skipuleggja og framkvæma innkaupaferli og -áætlanir.
- Mat á byrgjum og samnningagerð.
- Aðfangastýring, eftirlit með kostnaði og framkvæmd kostnaðargreininga.
- Eftirlit með framkvæmd innkaupa.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Haldbær reynsla af innkaupastjórnun og samningagerð, helst innan sjávarútvegs eða framleiðslugeira.
- Reynsla af FIDIC samningum er kostur.
- Færni í að leiða samningaviðræður.
- Þekking á aðferðum í kostnaðareftirliti og áhættugreiningu.
- Mjög góð skipulagshæfni og hæfni til að vinna undir tímapressu.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku; önnur tungumálakunnátta kostur.
Advertisement published8. October 2024
Application deadline21. October 2024
Language skills
EnglishVery good
IcelandicBasic skills
Location
Auðlindagarðurinn
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (8)
Verkefnastjóri hönnunar
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri BIM
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri vélbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri mannvirkja
Samherji Fiskeldi
Verkefnastjóri rafbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði vélbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði mannvirkja
Samherji Fiskeldi
Umsjónarmaður verksamninga á sviði rafbúnaðar
Samherji Fiskeldi
Similar jobs (12)
Fulltrúi í innkaupadeild
Terra hf.
Ert þú framsýnn og öflugur verkefnastjóri?
Fastus Heilsa
Starf við sölu og ráðgjöf á lækningatækjum
Fastus Heilsa
Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Olís ehf.
Verkefnastjóri öryggis- og gæðamála
Sorpa bs.
Fageftirlit rafbúnaðar
Landsnet hf.
Rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar og Blómavals á Norðurlandi
Húsasmiðjan
Sérfræðingur í stafrænni þróun flutningskerfis raforku
Landsnet hf.
Sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis
Landsnet hf.
Hönnuður í teymi þéttbýlistækni á Suðurlandi
EFLA hf
Hönnun og eftirlit á Vesturlandi
EFLA hf
Verkefnastjóri nýframkvæmda
Valsberg Mannvirkjalausnir