

Umsjónarkennarar í Salaskóla!
Salaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk, staðsettur á grónu svæði við Versali í Kópavogi. Skólinn var stofnaður árið 2001 og fagnar því 25 ára starfsafmæli á þessu ári. Í skólanum eru um 500 nemendur og þar starfar vel menntað og metnaðarfullt starfsfólk. Rík hefð er fyrir þróunarstarfi þar sem m.a. er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, teymiskennslu, jákvæðan skólabrag og gott samstarf við foreldra og nærsamfélagið. Í Salaskóla er rekin sérdeild fyrir börn með einhverfu, frístund fyrir nemendur í 1.-4. bekk og gott samstarf er við félagsmiðstöðina Fönix sem staðsett er í skólahúsnæðinu. Gildi Salaskóla eru vinátta, virðing og samstarf.
Umsjónarkennara vantar í Salaskóla fyrir skólaárið 2026-2027
Í Salaskóla vinna kennarar saman í teymum við undirbúning og skipulagningu náms og kennslu og mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum.
Laus störf eru í umsjónarkennslu á yngsta, mið- og unglingastigi og ýmsum kennslugreinum, m.a. tónmennt og skapandi smiðju. Nokkur störf eru laus til umsóknar og hér er því á ferðinni kjörið tækifæri fyrir góða teymisfélaga að sækja um og freista þess að koma saman á nýjan vinnustað í skemmtilegum skóla!
- B.Ed, M.Ed eða önnur viðeigandi menntun og leyfisbréf til kennslu.
- Vilji og hæfni til teymiskennslu og teymisvinnu.
- Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi gagnvart fjölbreyttum nemendahópi.
- Áreiðanleiki og stundvísi.
- Vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.
- Góð hæfni í íslensku, töluðu og rituðu máli.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins.
Icelandic










