Smáraskóli
Smáraskóli
Smáraskóli

Umsjónarkennari á miðstigi

Smáraskóli leitar að umsjónarkennara á miðstigi, 5. - 7. bekk, skólaárið 2026 - 2027.

Í Smáraskóla er litið á hvern árgang sem eina heild þar sem teymi kennara vinna með nemendum.

Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 515 nemendur og 80 starfsmenn. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar, skólinn er heilsueflandi grunnskóli og verið er að vinna að því að Smárskóli verði réttindaskóli UNICEF.

Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda og er teymiskennsla það fyrirkomulag sem lagt er til grundvallar. Allir kennarar ásamt nemendum í 5. – 10. bekk eru með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.

Smáraskóli er staðsettur í fallegu umhverfi í Kópavogsdalnum og miklir möguleikar eru til hreyfingar, útivistar og útikennslu í nágrenni skólans.

Menntun og mannrækt er leiðarljós í starfi Smáraskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í árgangateymi með umsjón.
  • Samstarf við foreldra um nám og velferð nemenda.
  • Samstarf innan skólans að faglegum málefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi.
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum.
  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta
Advertisement published27. February 2026
Application deadline15. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Dalsmári 1, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)PathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags