

Umsjónarkennari - Engidalsskóli - tímabundin ráðning
Engidalsskóli óskar eftir umsjónarkennara í 80-100% starf á miðstigi, tímabundin ráðning til eins árs.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk. Í næsta vetur verða nemendur um 200.
Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er í innleiðingu á leiðsagnarnámi. Skólinn starfar samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestranám og er lestur eina heimanám nemenda. Við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa. Við leitum að fólki sem vill taka þátt í að byggja upp öflugt skólastarf með okkur
Leiðarljós skólans eru: Ábyrgð - Virðing – Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu og umsjón á miðstigi
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina yngsta stigs og lestrakennslu
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta, hæfni C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, [email protected] í síma 555-4433.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2026.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn. Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic














































