Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness

Textílkennari í Barnaskóla Kársness

Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem mun hýsa fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Unnið er að uppbyggingu skólans og mun byggingin verða öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.

Við leitum að skapandi og metnaðarfullum textílkennara sem vill taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfs í nýjum skóla, börnum til heilla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með textílkennslu skólans í samráði við stjórnendur
  • Vinna við námsmat
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu
  • Reynsla af textílkennslu
  • Þekking og reynsla á teymiskennslu æskileg
  • Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Styttri vinnuvika

Advertisement published9. April 2025
Application deadline30. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags