

Skólastjóri nýs samrekins leik- og grunnskóla í Kópavogi
Við Skólagerði í Kópavogi er að rísa nútímaleg skólabygging sem mun hýsa nýjan samrekinn leik- og grunnskóla. Skólinn hefur fengið nafnið Barnaskóli Kársness. Skólinn mun hýsa fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Byggingin er öll hin glæsilegasta og býður upp á spennandi tækifæri til nýbreytni í skólastarfi. Í skólanum verða um 80 leikskólabörn og um 270 nemendur í 1.-4. bekk.
Leitað er að öflugum skólastjóra í samrekinn leik- og grunnskóla sem hefur hæfni til að leiða saman fólk og skapa öfluga liðsheild, hefur metnað til að ná árangri og þróa framsækið skólastarf. Hlutverk skólastjóra verður að móta einn skóla þar sem starfsfólk vinnur þétt saman þvert á skólastig. Skólastjórinn þarf að vera faglegur leiðtogi og byggja upp jákvæðan skólabrag og skapandi skólastarf, sem er í stöðugri þróun í samvinnu við börn, starfsfólk, foreldra og skólayfirvöld.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir framsækinn og árangursdrifinn einstakling sem vill leiða uppbyggingu og mótun skólastarfs í nýjum skóla.
- Veitir faglega forystu og leiðir stefnumörkun um framsækið og skapandi skólastarf
- Ábyrgð á rekstri samrekins leik- og grunnskóla og eftirfylgni fjárhagsáætlunar
- Ábyrgð á skipulagi daglegs skólastarfs og árangursríku samstarfi og samfellu milli skólastiga
- Ábyrgð á skipulagi og stjórnun mannauðs
- Stuðlar að velferð og vellíðan barna
- Ber ábyrgð á að leiða árangursríkt skólastarf í samreknum leik- og grunnskóla og stuðla að góðu samstarfi við nærsamfélagið, foreldra, skólayfirvöld og skólasamfélagið í heild.
-
Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
-
Kennslureynsla á leikskóla- og/eða grunnskólastigi
-
Framhaldsmenntun (diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunarfræða, stjórnunar eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi
-
Reynsla af stjórnun og faglegri forystu, nýbreytni og þróun í skólastarfi
-
Reynsla af rekstri skóla og eftirfylgni fjárhagsáætlana
-
Leiðtogahæfni, góð hæfni í samskiptum og skipulagshæfileikar
-
Frumkvæði, sjálfstæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
-
Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Styttri vinnuvika


















