Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Skólastjóri Tálknafjarðarskóla

Vesturbyggð auglýsir starf skólastjóra Tálknafjarðarskóla laust til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna sýn á rekstur skóla og er tilbúinn til að leiða Tálknafjarðarskóla í samræmi við skólastefnu Vesturbyggðar.

Tálknafjarðarskóli er samrekinn grunn- og leikskóli. Í skólanum eru um 35 nemendur og þar fer fram öflugt og framsækið skólastarf þar sem lögð er áhersla á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Skólinn er grænfánaskóli, heilsueflandi skóli og UNESCO skóli.

Einkunnarorð skólans eru jákvæðni – samvinna – skemmtun – þrautseigja.

Nýr skólastjóri þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2025.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og skólaþróun
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans
  • Samstarf við ýmsa aðila skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari og kennslureynsla er skilyrði
  • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
  • Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og þróun skólastarfs er kostur
  • Leiðtogahæfni og metnaður
  • Lipurð, hæfni og virðing í samskiptum ásamt góðu orðspori
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Advertisement published12. April 2025
Application deadline5. May 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Sveinseyri 140310, 460 Tálknafjörður
Type of work
Professions
Job Tags