Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sumarafleysing. Hjúkrunarfræðingur og/eða hjúkrunarfræðinemi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi óskar eftir hjúkrunarfræðing og/eða hjúkrunarfræðinema í sumarafleysingu á heilsugæslunni Akranesi.

Um er að ræða 80-100% stöðu.

Á heilsugæslunni er lagt upp með mikla teymisvinnu, þar starfa m.a hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, læknar, Iðjuþjálfi og sálfræðingar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ber ábyrgð á að skipuleggja og framkvæma hjúkrun skjólstæðinga á faglegum forsendum, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu og stefnu HVE.

Vinnur undir stjórn yfirhjúkrunarfræðings og ber faglega, siðferðislega og lagalega ábyrgð á störfum sínum skv. Siðareglum hjúkrunarfræðinga.

Ber ábyrgð á að framfylgja reglum um hreinlæti og smitgát á stofnuninni. Sýnir faglegan metnað og færni og leitast við að viðhalda þekkingu sinni og stuðlar að framþróun í hjúkrun. Þekkir og vinnur eftir Lögum um heilbrigðisstarfsmenn 34/2012.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í hjúkrunarmóttöku og ung- og smábarnavernd ásamt tilfallandi störfum sem tilheyra hjúkrun á heilsugæslustöð.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi.

  • Diploma í heilsugæsluhjúkrun er kostur

  • Góð íslenskukunnátta.

  • Hæfni í mannlegum samkiptum.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.

Advertisement published24. January 2025
Application deadline3. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Merkigerði 9, 300 Akranes
Type of work
Professions
Job Tags