Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skrifstofustjóri - Víðistaðaskóli

Auglýst er eftir skrifstofustjóra í 100% starf í Víðistaðaskóla.

Við í Víðistaðaskóla leitum að skrifstofustjóra til að slást í hópinn okkar. Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendum að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi. Skrifstofustjóri starfar sem aðstoðarmaður skólastjóra um almennan rekstur skólans og starfar einnig náið með stjórnendateymi skólans.

Við leitum að manneskju sem hefur reynslu af sambærilegu starfi, er lipur í mannlegum samskiptum, getur unnið undir álagi, er úrræðagóð og skipulögð.

Í Víðistaðaskóla eru um 520 nemendur í 1. – 10. bekk. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð, virðing, vinátta og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Hjá okkur er góður starfsandi og samheldni. Við leggjum ríka áherslu á að styðja við starfsfólk okkar og hugsa vel um hópinn.

Helstu verkefni skrifstofustjóra:

  • Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu og ber ábyrgð á samskiptum skóla við þá sem eiga erindi við hana
  • miðlun almennra upplýsinga til starfsmanna, nemenda og forráðamanna
  • Umsýsla ráðningasamninga og samskipti við launadeild
  • Umsjón með Vinnustund og starfsmannahaldi
  • Móttaka nýrra nemenda og skráning
  • Heldur utan um skráningar í Mentor og One system
  • Umsjón með skráningu nemenda, forfallaskráningu og skipulagi forfalla
  • Sér um skipulag og stjórnun skjalavörslu
  • Sér um pantanir á ýmsum gögnum sem nauðsynleg eru rekstri skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar – og hæfnikröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (B.A./B.S./B.Ed gráða)
  • Lipurð í samskiptum og samstarfshæfni
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og vilji til að ná árangri í starfi
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
  • Hæfni til að vinna undir álagi
  • Áhugi á mannauðstengdum verkefnum
  • Mjög góð þekking og reynsla af skrifstofustörfum
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Þekking á Kjarna og Vinnustund kostur
  • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 18.febrúar 2025

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir skólastjóri, [email protected] í síma 664-5890

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Ráðið er í stöðuna eftir samkomulagi..

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published4. February 2025
Application deadline18. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags