Flutningmiðlari
Vegna aukinna umsvifa leitar DB SCHENKER eftir flutningsmiðlara í öflugt teymi félagsins. Við leitum að kraftmiklum, jákvæðum einstaklingi með góða samskiptahæfni. Starfið felur í sér ráðgjöf í flutningsleiðum, þjónustu við viðskiptavini, tilboðsgerð og útgáfu farmbréfa, auk þess að vera í samskiptum við birgja og erlendar skrifstofur félagsins. Um framtíðarstarf er að ræða.
DB SCHENKER er leiðandi á heimsvísu í flutningsmiðlun. Hjá DB SCHENKER á Íslandi starfar sérhæft teymi með víðtæka reynslu og þekkingu á land-, flug- og sjóflutningi sem og flutningstengdri þjónustu. Starfsemi okkar byggir á traustum viðskiptasamböndum og sterkum samstarfsaðilum, en framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni starfsmanna okkar gegna lykilhlutverki í okkar árangri. Gildi okkar standa fyrir áreiðanleika, metnað, samvinnu, þjónustulund, heiðarleika og sjálfbærni.
Við bjóðum fjölbreytt og krefjandi starf í líflegu, alþjóðlegu starfsumhverfi með góðu samstarfsfólki. Við bjóðum upp á góða vinnuaðstöðu, gott mötuneyti og öflugt starfsmannafélag. Skrifstofa og vöruhús DB SCHENKER eru í Hafnarfirði.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn ferilskrá ásamt greinargóðu kynningarbréfi.
- Bókun sendinga
- Útgáfa farmbréfa í sjó og flugi
- Tilboðsgerð og eftirfylgni
- Sala og þjónusta við viðskiptavini
- Samskipti við erlendar skrifstofur og birgja
- Önnur tilfallandi verkefni
- Reynsla af flutningsmiðlum
- Góð tölvufærni er skilyrði, en starfsmaður fær kennslu hjá fyrirtækinu á sérhæfð tölvukerfi félagsins
- Þjónustulund, jákvætt viðhorf og lipurð í samskiptum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Gott vald á íslensku og ensku
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Hreint sakavottorð