Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Skrifstofustjóri öldrunarmála

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum og drífandi stjórnanda til að stýra skrifstofu öldrunarmála. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvætt og lausnamiðað hugarfar, þrífst á krefjandi verkefnum og hefur metnað til að veita framúrskarandi þjónustu.

Málaflokkar sem skrifstofa öldrunarmála ber ábyrgð á eru m.a. samþætt þjónusta heimahjúkrunar og heimastuðnings, hjúkrunarheimili, þjónustuíbúðir, dagdvalir, matarþjónusta og félagsstarf.

Skrifstofustjóri ber ábyrgð á að leiða faglegt starf og að þróun þjónustu sé í takt við þarfir notenda. Hann hefur yfirumsjón með verkefnum skrifstofunnar og stýrir forgangsröðun þeirra. Auk þessa leiðir hann samningagerð við Sjúkratryggingar Íslands m.a. vegna heimahjúkrunar og samstarf við hagaðila sem koma að öldrunarmálum.

Skrifstofustjóri situr í framkvæmdastjórn velferðarsviðs og heyrir starfið undir sviðsstjóra.

Umsækjendur verða metnir út frá grunnkröfum varðandi menntun, hæfni og reynslu. Umsækjendur eru beðnir um að sýna fram á í kynningarbréfi og ferilskrá hvernig þeir uppfylla hverja hæfnikröfu. Þeir umsækjendur sem uppfylla best allar hæfniskröfur og sýna fram á það með skýrum hætti í umsókn sinni verða boðaðir í viðtal.

Í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.

Velferðarsvið kallar eftir sakavottorðum í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hefur frumkvæði að þróun og nýbreytni í öldrunarmálum og tryggir að stefnumarkandi ákvörðunum sé hrint í framkvæmd
  • Stýrir faglegu starfi og daglegum rekstri skrifstofunnar ásamt samstarfi og samráði við aðrar þjónustueiningar sviðsins, stofnanir og samstarfsaðila innan og utan borgar
  • Leiðir samstarf við ríkisstofnanir, s.s. Sjúkratryggingar og heilbrigðisráðuneytið meðal annars vegna samninga um heimahjúkrun
  • Hefur umsjón og ábyrgð á samþættingu heimastuðnings og heimahjúkrunar í samstarfi við framkvæmdastjóra hvers þjónustusvæðis
  • Ber ábyrgð á almennri upplýsingamiðlun, meðal annars til hagsmunaaðila og fjölmiðla, um þjónustu og starfsemi öldrunarmála á vegum velferðarsviðs
  • Tekur þátt í undirbúningi funda velferðarráðs og situr fundi öldungaráðs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
  • Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og uppbyggingu liðsheildar, stjórnun krefjandi verkefna og umbótavinnu
  • Yfirgripsmikil þekking á öldrunarmálum og/eða velferðarþjónustu
  • Reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu
  • Leiðtogahæfileikar, framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Hæfni og reynsla í miðlun upplýsinga
  • Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
Advertisement published30. January 2025
Application deadline14. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (23)
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Störf í tímavinnu í neyðarskýli
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Stuðningsráðgafi á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmen
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarstjóri í heimaþjónustu Vesturmiðstöðvar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Vertu hluti af framtíð velferðarþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Heimastuðningur Norðurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sjúkraliði í endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun – Sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun í Vesturmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Teymisstjóri heimahjúkrunar í Vesturmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Vesturmiðstöð óskar eftir félagsráðgjafa í þjónustu við börn
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Starfmaður í heimastuðningi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingar Sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarnemar/sjúkraliðanemar og læknanemar-sumarstörf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sjúkraliðar í heimahjúkrun-Sumarstörf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarnemar, sjúkraliðanemar og læknanemar - sumarstörf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sjúkraliði í heimahjúkrun í Vesturmiðstöð - Sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sjúkraliði í heimahjúkrun í Vesturmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Stuðningsfulltrúi í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingur í Endurhæfingarteymi Austurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sjúkraliði
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun Austurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sjúkraliði Endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið