Intellecta
Um Intellecta:
Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á tveimur sviðum: ráðgjöf og ráðningum. Við vinnum með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar okkar hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu.
👉 Ráðningarsvið Intellecta vinnur með stjórnum og æðstu stjórnendum að ráðningum sérfræðinga og stjórnenda. Jafnframt sinna ráðgjafar okkar ráðgjöf til stjórnenda, atvinnuleitenda og starfslokaráðgjöf.
👉 Ráðgjafarsvið Intellecta sinnir verkefnum s.s. á sviði upplýsingatækni, stefnumótunar og stjórnunar auk þess sem kjarakönnun Intellecta hefur veitt stjórnum og stjórnendum góða innsýn inn í þróun launa á markaði.
Á næstunni flytjum við í nýtt og glæsilegt húsnæði að Höfðabakka 9, þar sem boðið verður upp á fyrsta flokks vinnuaðstöðu. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.intellecta.is.
Launasérfræðingur
Traust fyrirtæki á höfuðborgasvæðinu óskar eftir að ráða metnaðarfulla manneskju í starf launasérfræðings. Viðkomandi mun hafa það meginhlutverk að sinna launavinnslu ásamt umsjón og eftirliti með tímaskráningum starfsfólks auk fjölda annarra spennandi verkefna. Starfshlutfall er 60-100%.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þjónusta við starfsfólk og stjórnendur
- Launavinnsla, frágangur launa og umsjón kerfa
- Umsjón og eftirlit með skráningum í viðverukerfi
- Greiningar, samantekt og úrvinnsla á sviði launa- og kjaramála
- Túlkun kjarasamninga og eftirlit með framkvæmd þeirra
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af launavinnslu
- Reynsla af mannauðsmálum er kostur
- Jákvæðni, frumkvæði og framúrskarandi samskiptahæfni
- Gott vald á íslensku og ensku
- Mjög góð tölvukunnátta og færni í Excel
- Þekking og reynsla af störfum í H3 og Tímon
- Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni
Umsóknarfrestur er til og með 13.febrúar 2025. Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og Birna Dís Bergsdóttir ([email protected]) og í síma 511 1225.
Advertisement published30. January 2025
Application deadline13. February 2025
Language skills
Icelandic
ExpertRequired
English
Very goodRequired
Location
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Skrifstofustjóri öldrunarmála
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Kynningarstjóri – BHM
BHM
Sumarstarf námsmanns í félagsþjónustu Múlaþings Egilsstöðum
Fjölskyldusvið
SUMARSTÖRF Á FJÁRMÁLASVIÐI
Travel Connect
Bókari - hlutastarf
Tækniskólinn
Sérfræðingur á Úrræða og þjónustusviði
VIRK Starfendurhæfingarsjóður
Spennandi sumarstörf hjá TVG og Gáru
TVG-Zimsen
Verkstjóri á skrifstofu Vinnuskólans
Hafnarfjarðarbær
Við leitum að liðsauka í Fjallabyggð
Arion banki
Sérfræðingur í launaafgreiðslu
Fjársýslan
Spennandi sumarstörf um allt land
Eimskip
Sölumaður
Cargow Thorship