BHM
BHM eru heildarsamtök 24 aðildarfélaga. Í aðildarfélögunum eru yfir 18 þúsund félagar með margvíslegan bakgrunn og sérfræðiþekkingu sem starfa á öllum sviðum samfélagsins. Í krafti fjöldans og fjölbreytninnar stendur BHM vörð um mikilvægi hugvits, sérfræðikunnáttu og menntunar.
Kynningarstjóri – BHM
BHM óskar eftir að ráða kynningarstjóra í fjölbreytt og líflegt starf. Kynningarstjóri gegnir lykilhlutverki innan BHM og ber ábyrgð á sýnileika bandalagsins í opinberri umræðu. Hann stýrir almannatengslum BHM og upplýsingamiðlun á vef- og samfélagsmiðlum. Auk þess annast kynningarstjóri viðburðastjórnun bandalagsins. Leitað er að aðila sem hefur ástríðu fyrir almannatengslum og reynslu af upplýsingamiðlun á samfélagsmiðlum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á framkvæmd kynningarstefnu BHM
- Upplýsingamiðlun til fjölmiðla og hagsmunaðila um starfsemi og hagsmunamál BHM
- Samskipti við fjölmiðla um málefni BHM
- Ritstjórn og þróun vefsíðu og samskiptamiðla BHM
- Ritun og miðlun frétta, greina og pistla um hagsmunamál BHM
- Skipulag og undirbúningur viðburða á vegum bandalagsins
- Ábyrgð á gerð og dreifingu kynningarefnis og auglýsinga
- Þátttaka í innra starfi BHM og samskiptum við innlenda og erlenda samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af störfum við fjölmiðlun, almannatengsl og kynningarmál
- Reynsla af vefumsjón, upplýsingamiðlun á samfélagsmiðlum og útgáfu
- Góð tölvufærni og reynsla af hönnun og framsetningu efnis fyrir vefmiðla
- Mjög góð íslenskukunnátta og reynsla af textaskrifum
- Þekking á hlutverki stéttarfélaga og málefnum vinnumarkaðar æskileg
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Góð enskukunnátta í ræðu og riti, kunnátta í Norðurlandamálum er æskileg
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, [email protected].
BHM er vinnustaður þar sem kynjajafnrétti er haft að leiðarljósi og því eru öll kyn hvött til að sækja um.
Advertisement published30. January 2025
Application deadline12. February 2025
Language skills
Icelandic
ExpertRequired
Location
Borgartún 27, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Skrifstofustjóri öldrunarmála
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Launasérfræðingur
Intellecta
Sumarstarf námsmanns í félagsþjónustu Múlaþings Egilsstöðum
Fjölskyldusvið
SUMARSTÖRF Á FJÁRMÁLASVIÐI
Travel Connect
Bókari - hlutastarf
Tækniskólinn
Sérfræðingur á Úrræða og þjónustusviði
VIRK Starfendurhæfingarsjóður
Spennandi sumarstörf hjá TVG og Gáru
TVG-Zimsen
Verkstjóri á skrifstofu Vinnuskólans
Hafnarfjarðarbær
Við leitum að liðsauka í Fjallabyggð
Arion banki
Spennandi sumarstörf um allt land
Eimskip
Sölumaður
Cargow Thorship
Flutningmiðlari
DB SCHENKER á Íslandi