Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Lækjarskóli 

Lækjarskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliða í 75-100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfar með nemendum með sértækan vanda
  • Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
  • Starfar í frístundaheimili og á sumar- og leikjanámskeiðum
  • Tekur á móti nemendum og aðstoðar
  • Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og snyrtingum snyrtilegum yfir daginn
  • Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
  • Fylgist með og aðstoðar börnin í leik og starfi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla að vinna með börnum með sérþarfir kostur
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum og unglingum
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum

Umsóknarfrestur til og með 13. febrúar 2025.

Nánari upplýsingar veitir Arna Björný Arnardóttir skólastjóri, [email protected]

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.

Advertisement published30. January 2025
Application deadline13. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Sólvangsvegur 4, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags