Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.000 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Þú ert á góðum stað eru kjörorð sveitarfélagsins.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.
Leikskólakennari við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Leikskóli Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla óskar eftir leikskólakennara sem er reiðubúinn að ganga til liðs við lítinn hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtilegt og krefjandi starf með nemendum leikskólans. Við viljum búa börnum öruggt umhverfi þar sem þau fá svigrúm til að vaxa og þroskast. Í Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóla er góður starfsandi sem einkennist af jákvæðni og gleði. Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra
- Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við aðra starfsmenn og deildarstjóra
- Hafa samskipti og samvinnu við foreldra í samstarfi við deildarstjóra
- Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
- Samskipta og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Skipulagshæfileikar.
- Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
- Íslenskukunnátta er skilyrði
Advertisement published27. January 2025
Application deadline13. February 2025
Language skills
Icelandic
IntermediateRequired
Location
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (7)
Verkstjóri í þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð
Forstöðumaður Veitna
Fjarðabyggð
Frístundarleiðbeinandi í félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð
Frístundarleiðbeinandi á Reyðarfirði
Fjarðabyggð
Staða sjúkraliða við frístund í Grunnskóla Reyðarfjarðar
Fjarðabyggð
Skólaliði við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð
Stuðningsfulltrúi Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð
Similar jobs (12)
PISA - fyrirlögn á Norðurlandi vestra
Mennta- og barnamálaráðuneyti
Laus staða í Marbakka
Marbakki
Leikskólakennari
Leikskólinn Sólborg
Kennari á yngra stigi
Fellaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi
Vatnsendaskóli
Leikskólakennari/sérkennsla
Leikskólinn Skerjagarður
Leikskólakennari, 50-100% starf
Seltjarnarnesbær
Skóla- og frístundaliði - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Kennari í sérdeild - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Holtaskóli – Aðstoðarskólastjóri
Reykjanesbær
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær