Fellaskóli
Kennari á yngra stigi
Í skemmtilegan og fjölbreyttan starfsmannahóp vantar okkur umsjónarkennara á yngra stig. Kennt er í teymum og í hverjum árgangi eru tveir námshópar sem kennarar bera sameiginlega ábyrðg á. Nemendahópurinn er fjölbreyttur og spennandi og við hvetjum til fjölbreyttra vinnubragða.
Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks. Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag, samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast.
Við höfum undanfarið unnið að ýmsum verkefnum til að bæta kennslu og aðra þjónustu við nemendur. Megináhersla er á málþroska og læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu kennara, ásamt tónlist og skapandi skólastarfi. Í skólanum starfa þrír verkefnisstjórar sem styðja við þessa þætti.
Fellaskóli er skóli án aðgreiningar og meginstefnan er að sérkennsla og ÍSAT kennsla fari fram í bekk. Mikil áhersla er á læsi í yngstu árgöngunum og við vinnum náið með leikskólum hverfisins til að efla málþroska nemenda. Í Fellaskóla starfar talmeinafræðingur.
Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma.
Við bjóðum upp á skemmtilegt starfsumhverfi, flottan starfsmannahóp og rík tækifæri til að þróast í starfi. Vegna forfalla leitum við að kennurum / leiðbeinendum með fjölbreytta reynslu og bakgrunn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda á yngra stigi í samstarfi við teymi kennara.
- Umsjón með hópi nemenda á yngra stigi.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
- Stuðla að farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari eða önnur menntun / reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Faglegur metnaður.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Reynsla af teymisvinnu er kostur.
- Mjög góð íslenskukunnátta.
Advertisement published30. January 2025
Application deadline14. February 2025
Language skills
Icelandic
ExpertRequired
Location
Norðurfell 17-19 17R, 111 Reykjavík
Type of work
Skills
TeachingHuman relationsTeam work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)
PISA - fyrirlögn á Norðurlandi vestra
Mennta- og barnamálaráðuneyti
Laus staða í Marbakka
Marbakki
Umsjónarkennari á miðstigi
Vatnsendaskóli
Leikskólakennari við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
Fjarðabyggð
Kennari í sérdeild - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Holtaskóli – Aðstoðarskólastjóri
Reykjanesbær
Umsjónarkennari í Fjölgreinadeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Starf í leikskólanum Garðaseli
Leikskólinn Garðasel
Forfallakennari í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli
Forfallakennari - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær
Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla
Hafnarfjarðarbær
PISA - fyrirlögn á Vestfjörðum
Mennta- og barnamálaráðuneyti