Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel

Starf í leikskólanum Garðaseli

Heilsuleikskólinn Garðasel á Akranesi auglýsir eftir starfsmanni til starfa sem fyrst. Um er að ræða tímabundið starf fram í júlí með möguleika á að skoða áframhaldandi starf. Vinnutími er breytilegur en leikskólinn er opinn frá klukkan 7:30 til 16:30.

Garðasel er Heilsuleikskóli og leggur áherslu á hreyfingu, heilsu og gæði í samskiptum. Við leitum að duglegum starfsmanni sem er tilbúinn að vinna með öflugum starfsmannahópi af áhuga, jákvæðni og gleði. Í leikskólanum eru um 160 börn á sjö deildum og einkunnarorð skólans eru: Lífið er leikur.

Leikskólinn er í nýju og glæsilegu húsnæði þar sem m.a. starfsaðstaða, hljóðvist og lýsing er til fyrirmyndar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leiðbeinenda eða leikskólakennara. Starfið er unnið í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Uppeldismenntun kostur
  • Áhugi, reynsla og góð hæfni í starfi með börnum
  • Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • 18 ára og eldri
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published29. January 2025
Application deadline5. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Asparskógar 25
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.No tobacco
Suitable for
Professions
Job Tags