Fylgdarstarfsmaður í skólaakstur - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða fylgdarstarfsfólk í skólaakstur fatlaðra barna
Um er að ræða fylgd í skólaakstur til og frá skóla/frístundarúrræði frá Hafnarfirði að morgni (milli kl. 7 og 8) í önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og til baka síðdegis (milli kl. 16 og 17). Um er að ræða akstur alla virka skóladaga. Fylgdin felur í sér að fylgjast með líðan nemenda í skólarútu og aðstoða við aðbúnað í akstrinum milli staða.
Hægt er að sækja um einstaka vikudaga til fylgdar. Fylgdin hefst við heimili barns og lýkur þar í dagslok. Miðað er við að starfið hefjist í byrjun janúar 2025 og ljúki í lok skólaársins. Um tímavinnu er að ræða eftir vinnuframlagi. Getur hentað vel þeim sem búa í Hafnarfirði og fara á morgnana í framhalds-/háskóla í Reykjavík og heim síðdegis eftir kennslu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að sjá til þess að nemendur séu sem öruggir í skólaakstri
- Að geta beitt einfaldri skyndihjálp ef á þarf að halda
- Að hjálpa nemendum inn og út úr skólabifreið eins og þörf er á
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur:
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi, samviskusemi og reglusemi
- Íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2025.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veitir Hrönn Garðarsdóttir, netfang [email protected].
Launakjör eru samkvæmt kjarasamning Samband íslenskra sveitarfélaga og Hlífar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.