Húsatóftir ehf
Húsatóftir ehf
Húsatóftir ehf

Rekstrarstjóri fiskeldis

Nýtt félag á vegum Brim, Húsatóftir ehf, leitar að öflugum og drífandi rekstrarstjóra til að leiða starfsemi félagsins og taka þátt í uppbyggingu þess til framtíðar. Starfsemin byggir á rekstri i landeldisfyrirtækisins Matorku.

Rekstrarstjóri hefur yfirumsjón með starfseminni í Grindavík og Fellsmúla, Landssveit, með megináherslu á starfsstöðina í Grindavík. Við leitum að framsýnum aðila sem hefur áhuga á að skapa traustan rekstrargrundvöll, þróa starfsemina og tryggja skilvirkan og hagkvæman rekstur.

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling með reynslu af fiskeldi og stjórnun, en starfið felur í sér fjölbreytta ábyrgð á rekstri, framleiðslu og mannauðsmálum. Áhersla er lögð á virka þátttöku í daglegum rekstri, öflug samskipti við starfsfólk og uppbyggingu jákvæðrar vinnustaðamenningar þar sem fagmennska, samstarf og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegum rekstri starfsstöðva félagsins í Grindavík og Landssveit
  • Stjórnun framleiðslu og daglegra verkefna
  • Leiða, styðja og þróa starfsfólk og stuðla að góðri liðsheild og jákvæðri vinnustaðamenningu
  • Tryggja skilvirka nýtingu mannafla, fjármuna og búnaðar
  • Fylgja eftir rekstraráætlunum, kostnaði og framleiðslumarkmiðum
  • Stuðla að umbótum á verklagi, verkferlum og skipulagi starfseminnar
  • Tryggja að starfsemin uppfylli kröfur um gæði, öryggi, fiskivelferð og umhverfismál
  • Vinna náið með forstjóra, stjórn og öðrum stjórnendum að þróun og uppbyggingu félagsins
  • Vera sýnilegur í starfseminni og eiga góð og regluleg samskipti við starfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af fiskeldi eða tengdri starfsemi er skilyrði
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af rekstri og stjórnun, einkum á sviði framleiðslu eða fiskeldis
  • Góð rekstrarleg og fjárhagsleg yfirsýn
  • Þekking á framleiðsluferlum og tæknilegum þáttum fiskeldis
  • Samskipta- og leiðtogahæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Lausnamiðuð nálgun og vilji til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, norðurlandamál er kostur
Advertisement published13. November 2026
Application deadline27. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Type of work
Professions
Job Tags