Landsnet
Landsnet

Sérfræðingur í rekstri, stjórn- og varnarbúnaðar

Landsnet leitar að metnaðarfullum og ábyrgum liðsfélaga til að styrkja teymi sérfræðinga sem sinnir rekstri stjórn- og varnarbúnaðar og sjálfvirknivæðingu í flutningskerfi raforku. Hlutverk teymisins er að undirbúa Landsnet fyrir framtíðina – hvort sem það felur í sér nýja tækni, aukinn raforkuflutning, nýja viðskiptavini eða breyttar áherslur í orkumálum.

Landsnet er framarlega í notkun stafrænna lausna í orkuflutningi. Í starfinu sameinast rafmagnsþekking og verkleg vinna við stillingar og prófanir á stjórn- og varnarbúnaði í tengivirkjum. Þú tekur þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg samfélagsáhrif og styður við stafræna þróun flutningskerfisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Rekstur og eftirlit með stjórn- og varnarbúnaði.
  • Innleiðing nýrrar tækni í stjórn- og varnarbúnaði raforkukerfa.
  • Verkleg vinna á vettvangi, m.a. mælingar, prófanir og uppsetning búnaðar.
  • Þátttaka í greiningu gagna og upplýsinga til að bæta rekstur og öryggi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði rafiðn-, rafmagnstækni-, rafmagnsverk- eða tölvunarfræði. Marktæk starfsreynsla getur komið í stað formlegrar menntunar.
  • Þekking og reynsla í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar og/eða raforkukerfum er kostur.
  • Reynsla og þekking á háspennubúnaði er kostur.
  • Góð hæfni í uppbyggilegum samskiptum og samvinnu.

Landsnet býður þér:

  • Tækifæri til að hafa áhrif á samfélagslega mikilvæg verkefni og móta stafrænan rekstur flutningskerfisins.
  • Gott vinnuumhverfi þar sem áhersla er á faglegan stuðning og þjálfun.
  • Góð aðstaða á vinnustaðnum, m.a. líkamsrækt og mötuneyti.
  • Samstarf við fjölbreytt, áhugasamt og þekkingarmikið starfsfólk.


Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2026. Umsókn óskast útfyllt á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Vilborg Þórðardóttir í síma 511 1225.

Advertisement published2. November 2026
Application deadline17. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Industrial technicianPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Computer scientistPathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Professions
Job Tags