Coripharma ehf.
Coripharma ehf.
Coripharma ehf.

Framkvæmdastjóri Framleiðslusviðs

Ert þú framsýnn leiðtogi með ástríðu fyrir framleiðslu, gæðum og öflugri liðsheild? Vilt þú leiða uppbyggingu og þróun lyfjaframleiðslu í alþjóðlegu umhverfi? Þá gæti þetta verið tækifærið fyrir þig!

Coripharma leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra Framleiðslusviðs. Við leitum að einstaklingi sem sameinar stefnumótandi sýn, rekstrarþekkingu og hæfni til að leiða fólk og stöðugar umbætur.

Framkvæmdastjóri framleiðslusviðs (e. Director of Production Operations) leiðir stefnumótun og rekstur sviðsins, sem nær yfir bæði lyfjaframleiðslu og lyfjapökkun. Á framleiðslusviði starfa í dag 85 starfsmenn sem starfa að hluta til á vöktum. Hlutverkið felur í sér ábyrgð á rekstrarárangri og afkomu, áætlanagerð, nýtingu mannafla og fjármuna, fjárfestingum og stöðugum umbótum. Framkvæmdastjóri tryggir að starfsemin sé örugg, skilvirk og arðbær og uppfylli gæðakröfur og gildandi framleiðsluhætti (cGMP).

Rík áhersla er lögð á þróun öflugra teyma, þjálfun starfsfólks og samstarf þvert á félagið. Framkvæmdastjóri leiðir aukningu framleiðslu og innleiðingu nýrra lyfja í framleiðslu og tryggir að fullgilding framleiðsluferla og þrifa sé til staðar. Þá tekur hann þátt í gæðaráði félagsins og vinnur að áhættu- og frávikastjórnun og undirbúningi fyrir úttektir.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í lyfjafræði, tæknifræði, verkfræði eða sambærilegu vísinda- eða tækninámi.
  • Reynslu af framleiðslu og þá helst lyfjaframleiðslu og/eða reynslu af gæðastörfum í lyfjaframleiðslu
  • Að minnsta kosti fimm ára stjórnunarreynslu í framleiðslu eða gæðaumhverfi.
  • Leiðtogahæfni, drifkraft og metnað til að byggja upp öfluga liðsheild.
  • Skipulagshæfileika, nákvæmni og öguð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framúrskarandi íslensku- og enskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
Advertisement published12. November 2026
Application deadline22. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.WaiterPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.PharmacistPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Work environment
Professions
Job Tags