Skógræktarfélag Íslands
Skógræktarfélag Íslands
Skógræktarfélag Íslands

Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands

Skógræktarfélag Íslands (SÍ) er landssamband skógræktarfélaga um land allt og vinnur að eflingu skógræktar í þágu almennings.

Framkvæmdastjóri SÍ ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins, framkvæmd stefnu stjórnar og faglegri forystu í starfsemi tengdri skógrækt, umhverfismálum, útivist og félagastarfi.

SÍ leitar nú að framkvæmdastjóra sem getur stutt félagið í að vera leiðandi afl í mótun, vernd og þróun skóga á Íslandi. Leiðarljós framkvæmdastjóra er að gera SÍ að öflugum málsvara aðildarfélaganna gagnvart stjórnvöldum og í samfélagsumræðunni. Einnig að draga fram samfélagslegt verðmæti skóga og vinna að því að gera skógana aðgengilega almenningi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Yfirumsjón með daglegum rekstri, fjármálum og starfsmannahaldi félagsins.

·        Kynningar- og fræðslustarf um skógrækt og gildi hennar fyrir samfélag og náttúru.

·        Samskipti við aðildarfélög, stjórnvöld, styrktar- og samstarfsaðila.

·        Framkvæmd ákvarðana og stefnu stjórnar.

·        Undirbúningur og eftirfylgni funda stjórnar- og aðalfunda.

·        Umsjón með verkefnum tengdum skógrækt.

·        Öflun rekstrarfjár, umsjón með samningum og styrkumsóknum.

·        Gerð ársskýrslna, fjárhagsáætlana og annarra skýrslna um starfsemina.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

·        Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri, gjarnan í félagasamtökum eða opinberum rekstri.

·        Áhugi á skógræktarstarfi er skilyrði.

·        Leiðtogahæfni og geta til að vinna með fjölbreyttum hópi sjálfboðaliða og fagfólks.

·        Færni í verkefnastjórnun.

·        Færni í mannlegum samskiptum og samningagerð.

·        Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.

·        Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Fríðindi í starfi

Launakjör eru samkvæmt samkomulagi milli stjórnar SÍ og umsækjanda. 

Advertisement published14. October 2026
Application deadline16. November 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Mógilsá 125733, 116 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags