Vínbúðin
Vínbúðin
Vínbúðin

Framkvæmdastjóri reksturs og þróunar

ÁTVR leitar að öflugum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra reksturs og þróunar. Starfið er lykilstaða í framkvæmdastjórn ÁTVR og felur í sér víðtæka ábyrgð á fjármálum og rekstri fyrirtækisins.

Við leitum að reyndum stjórnanda með sterka leiðtogahæfni, góða fjármálalega og rekstrarlega yfirsýn og hæfni til að leiða þróun og umbætur. Undir starfssviðið heyra meðal annars fjármál, upplýsingatækni og stafræn þróun, samningar, fasteignir og öryggismál.

Framkvæmdastjóri þarf að vera drífandi og umbótasinnaður, hafa ríka greiningarhæfni og geta nýtt gögn og upplýsingar markvisst við ákvarðanatöku. Mikilvægt er að viðkomandi hafi heildarsýn á rekstur og komi auga á tækifæri til aukinnar skilvirkni. Jafnframt skiptir miklu að viðkomandi byggi upp traust og samstöðu og stuðli að hvetjandi og árangursríku starfsumhverfi.

Starfssvið

  • Ábyrgð á fjármálastjórn, reikningsskilum, uppgjörum, ársreikningi og árs- og samfélagsskýrslu
  • Gerð rekstrar- og fjárfestingaáætlana, eftirfylgni og frávikagreining
  • Greining rekstrarupplýsinga, kostnaðareftirlit og markviss upplýsingagjöf
  • Ábyrgð á áhættustýringu og innra eftirliti
  • Ábyrgð á rekstri, viðhaldi og þróun upplýsingatæknikerfa og tæknilegra innviða
  • Mótun og innleiðing áætlana um stafræna þróun og nýtingu tæknilausna til að bæta þjónustu og auka skilvirkni
  • Ábyrgð á rekstrar- og upplýsingaöryggi og viðbúnaði vegna rekstrartruflana
  • Ábyrgð á framkvæmdum, viðhaldi og endurnýjun fasteigna og annarra fastafjármuna
  • Virk þátttaka í framkvæmdastjórn, stefnumótun og innleiðingu breytinga

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
  • Farsæl stjórnunarreynsla
  • Haldgóð reynsla af fjármálastjórnun og reikningshaldi
  • Reynsla af áætlanagerð og greiningum
  • Reynsla af smásölu er kostur
  • Reynsla og þekking á opinberu starfsumhverfi er kostur
  • Mjög góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptafærni
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Árangursdrifni, frumkvæði og metnaður
Advertisement published3. November 2026
Application deadline16. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Stuðlaháls 2, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags