VIVA Museum ehf.
VIVA Museum ehf.

Safnstjóri

VIVA Museum er nýtt og áhugavert alþjóðlegt safn, sem opnar í miðborg Reykjavíkur í apríl 2027. Við leitum að safnstjóra í 100% starfshlutfall.

Helstu verkefni safnstjóra eru að annast daglegan rekstur, vinna að uppsetningu sýninga og varðveislu safngripa. Þá skipuleggur safnstjóri fjölbreyttar menningartengdar dagskrár og hvers kyns aðra viðburði.

Um er að ræða dagvinnu, en safnstjóri þarf þó jafnframt að geta unnið utan hefðbundins vinnutíma í tengslum við einstaka viðburði.

Helstu verkefni eru:

  • Daglegur rekstur safnsins.
  • Daglegur talsmaður safnsins gagnvart gestum, áhugasömum og fjölmiðlum.
  • Yfirumsjón með munavörslu, skráningu, úrvinnslu og kynningu á safnmunum.
  • Umsjón með safnkennslu.
  • Skipulagning viðburða, sýninga og dagskrár safnsins.
  • Vinna við stefnumótun, framtíðarsýn og framkvæmd safnastarfa.
  • Samstarf við erlenda listamenn og söfn.

Hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og þekking á sviði safnamála.
  • Reynsla af rekstri.
  • Reynsla af skipulagningu viðburða.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Samskiptahæfni og færni til koma fram fyrir hönd safnsins, í ræðu og riti, á óaðfinnanlegri íslensku og ensku. Aukin tungumála kunnátta er kostur.

Aðrir þættir sem nýst geta í starfi.

Advertisement published10. November 2026
Application deadline30. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
DanishDanish
Optional
Basic skills
SpanishSpanish
Optional
Basic skills
Location
Reykjavík, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags