Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum safnstjóra í 80 % starf

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 530 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Halda utan um starfsemi bókasafnsins
  • Annast innkaup á nýjum bókum/safnkosti
  • Skrá og flokka bókakost safnsins
  • Aðstoða nemendur við upplýsingaöflun og bókaval
  • Starfa náið með starfsfólki og veita þeim ráðgjöf
  • Fræðsla um bókasafns- og upplýsingalæsi
  • Þátttaka í lestrarhvetjandi verkefnum
  • Þátttaka í þróunarverkefnum skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • M.A próf í upplýsingafræði eða B.A próf í upplýsingafræði og mikil starfsreynsla á sérsviðinu.
  • Þekking á Ölmu bókasafnskerfi kostur
  • Reynsla og þekking af störfum á bókasafni æskileg
  • Nákvæmni í vinnubrögðum
  • Brennandi áhugi á starfi með börnum og ungmennum
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Geta til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Frumkvæði og skipulagshæfileikar
  • Mjög góð tölvukunnátta

Ráðið er í stöðuna sem fyrst.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.

Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2026.

Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published13. November 2026
Application deadline27. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags