

Starfsmaður í Tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, auglýsir laust til umsóknar starf í Tilraunaeldisstöð stofnunarinnar í Grindavík
Í Tilraunaeldisstöðinni fer fram fjölbreytt rannsókna- og þróunarstarf sem tengist fiskeldi og líffræði fiska og annarra vatnalífvera. Rannsóknirnar ná til tegunda bæði í ferskvatni og sjó og miða meðal annars að því að þróa og bæta eldisaðferðir, auk þess að auka þekkingu á líffræði mismunandi tegunda.
Starfið býður upp á tækifæri til að vinna með fjölbreyttar eldislífverur og taka þátt í spennandi rannsókna- og þróunarverkefnum. Um er að ræða fjölbreytt og verklegt starf þar sem dagleg umhirða eldislífvera og rekstur eldiskerfa fara saman við þátttöku í rannsóknum. Lögð er áhersla á að ráða lausnamiðaðan einstakling sem hefur góða færni í að vinna sjálfstætt og í teymi.
- Almenn eldisstörf og umhirða fiska á öllum stigum eldisins, frá hrognum til fullorðinna fiska.
- Ræktun og umhirða lifandi fæðudýra.
- Eftirlit með eldiskerfum, vatnsgæðum og aðbúnaði eldislífvera.
- Þátttaka í framkvæmd rannsókna og tilrauna, meðal annars við sýnatökur, mælingar og skráningu gagna.
- Þrif, viðhald og önnur verkefni sem tengjast daglegum rekstri stöðvarinnar.
- Menntun á sviði fiskeldis, líffræði, búvísinda eða skyldra greina er æskileg. Handbær reynsla af fiskeldi getur komið í stað formlegrar menntunar.
- Reynsla og þekking á fiskeldisstörfum, kostur
- Áhugi á fiskeldi, líffræði og rannsókna- og þróunarstarfi.
- Verkleg færni og reynsla af almennu viðhaldi, kostur
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
- Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Íslenska
Enska