Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Hagasteinn: Skólastjóri - nýr skóli

Staða skólastjóra leikskólans Hagasteins á Akureyri er laus til umsóknar. Um ótímabundna ráðningu er að ræða. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. apríl 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Viltu stýra glænýjum leikskóla?

Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum skólastjóra sem er reiðubúinn til þátttöku í að byggja upp nýjan leikskóla frá grunni. Skólinn opnar í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga er áætlað að opna fjórar deildir í ágúst 2026 og í seinni áfanga verða fjórar deildir opnaðar, áætlað í apríl 2027. Lögð verður áhersla á hlýtt, öruggt og skapandi lærdómssamfélag þar sem velferð barna og starfsfólks er í fyrirrúmi.

Skólastjóri er forstöðumaður leikskóla, stjórnar honum og er faglegur leiðtogi sem fylkir liði um stefnu skólans og árangursríka starfshætti. Skólastjóri stýrir og ber ábyrgð á faglegri þróun, daglegum rekstri, mannauðsmálum og annarri starfsemi skólans og tryggir að skólastarf sé í samræmi við lög og reglugerðir. Skólastjóri kemur á og viðheldur góðum skólabrag með tilstyrk starfsfólks skólans.

Við leggjum áherslu á heilnæmt og barnvænt umhverfi, þar sem líkamleg og andleg vellíðan er undirstaða leikskólastarfsins. Í innra og ytra umhverfi skólans verður hugað að:

  • Eiturefnalausu umhverfi: Áhersla lögð á vandaðan efnivið í húsgögnum, leikföngum, borðbúnaði og námsgögnum, þannig að umhverfið sé öruggt og heilnæmt eins og kostur er.
  • Náttúrunni: Náttúran verður nýtt markvisst sem hluti af leik og námi og umhverfismennt fái ríkan sess í daglegu starfi.
  • Hreyfingu og næringu: Börn fá fjölbreytt tækifæri til hreyfingar og góð næring er hluti af daglegu starfi.
  • Virðingu fyrir umhverfi: Flokkun og umhverfisvitund eru hluti af leik og starfi.
  • Heilbrigði og öryggi: Öryggi, vellíðan og heilbrigði allra í skólasamfélaginu eru ávallt í forgrunni.
  • Náttúrulegu litavali og rólegu umhverfi: Róandi og fallegt umhverfi styður einbeitingu, leik og skapandi hugsun.
  • Skapandi og sjálfsprottnum leik: Leik- og efniviður er valinn með það í huga að hvetja börn til sjálfstæðrar sköpunar, ímyndunar og lausnaleitar.
  • Lestrar- og málörvun: Lögð er áhersla á málþroska og læsi með læsishvetjandi umhverfi á fjölbreyttan hátt.

Áherslur

Leikskólinn mun starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um leikskóla, Aðalnámskrá leikskóla, menntastefnu Akureyrarbæjar og sem Réttindaskóli UNICEF, þar sem mannréttindi barna eru leiðarljós í öllu starfi.

Í samstarfi við nýráðinn skólastjóra fer fram sameiginleg mótun faglegra áherslna, agastefnu og innra starfs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skólastjóri leiðir þróun skólastarfs og veitir því faglega forystu í samræmi við skólastefnu, menntastefnu og aðrar stefnur Akureyrarbæjar, aðalnámskrá leikskóla, lög og reglugerð um leikskóla og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
  • Stýrir daglegri starfsemi, mannauðs- og rekstrarmálum.
  • Stuðlar að framförum, árangri, velferð og vellíðan nemenda og starfsfólks.
  • Þróar og fylgir eftir framsækinni sýn, stefnu og skólamenningu í samstarfi við starfsfólk, nemendur og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Viðbótarmenntun á sviði menntunarfræða og/eða stjórnunar er æskileg.
  • Farsæl reynsla af kennslu.
  • Farsæl samvinna við aðstandendur nemenda.
  • Farsæl reynsla af störfum á sviði stjórnunar og/eða reksturs skóla.
  • Farsæl reynsla af faglegri forystu og leiðsögn á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
  • Farsæl reynsla af mannauðsmálum kostur og færni til eflingar mannauðs.
  • Samstarfsvilji og framúrskarandi hæfni og lipurð í samskiptum.
  • Frumkvæði og góð leiðtogahæfni.
  • Sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
  • Metnaður til árangurs.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð enskukunnátta.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published11. December 2025
Application deadline4. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Naustagata 6
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Public speakingPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human resourcesPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.InnovativePathCreated with Sketch.HiringPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Personnel administrationPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags