Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Kennari - Leikskólinn Vesturkot

Leikskólinn Vesturkot óskar eftir að ráða kennara í fullt starf frá 11. ágúst 2025

Leikskólinn Vesturkot er fjögra deilda, staðsettur á Holtinu þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Stefna leikskólans tekur mið af lærdómsamfélaginu þar sem áhersla er lögð á að allir séu virkir þátttakendur í að móta og þróa skólastarfið og því leggjum við mikla áherslu á teymisvinnu. Einkunnarorð leikskólans eru leikur, samvinna og virðing. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæð og uppbyggileg samskipti. Við erum Heilsueflandi vinnustaður, vináttuleikskóli Barnaheilla, vinnum að snemmtækri íhlutun í málþroska barna og umhverfismennt er hluti af okkar starfi. Góð samvinna allra, velíðan og starfsáægja teljum við að þurfi að vera til staðar til að geta byggt upp metnarfullt og faglegt leikskólstarf þess vegna leggjum við áherslu á slíkt starfsumhverfi.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Þóra Ásdísardóttir, leikskólastjóri og Hulda Þórarinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri - [email protected]

Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknarfrestur 4. júlí 2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published24. June 2025
Application deadline4. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Miklaholt 1, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags