Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Tröllaheima - Áslandsskóli

Skóla- og frístundaliði í fyrir skólaárið 2025-2026

Áslandsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50% starf á frístundaheimilið Tröllaheima.

Um er að ræða hlutastarf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í 1. – 4. bekk í frístundaheimilinu Tröllaheimum eftir hádegi virka daga frá kl. 13:00 til kl. 17:00. Starfið hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.

Tröllaheimar býður upp á fjölbreytt tómstundarstarf þar sem áhersla er lögð á að bjóða upp á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins. Á skipulagsdögum skólans og virkum dögum í jóla- og páskafríi er frístundaheimilið opið frá kl. 8:00 til kl. 16:30.

Áslandsskóli var stofnaður árið 2001 og eru um 450 nemendur í skólanum. Einkunnarorð skólans eru samvinna, ábyrgð, tillitsemi og traust. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum, styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda og skapa jákvæðan skólabrag.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Tekur þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi
  • Stuðla að velferð ungmenna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á faglegu starfi með börnum og unglingum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veita Eva Björk Jónsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar [email protected] eða í síma 664-5785 og Unnur Elfa Guðmundsdóttir skólastjóri, [email protected], Hálfdan Þorsteinsson aðstoðarskólastjóri [email protected] eða í síma 585-4600.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 15.ágúst 2025

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins

Advertisement published24. June 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Kríuás 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags