
Sérkennsla - Farteymi
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir laust til umsóknar fjórar stöður leikskólasérkennara/leikskólakennara/þroskaþjálfa/atferlisfræðings við farteymi leikskóla.
Um er að ræða nýtt starf hjá skóla- og frístundasviði. Aðsetur þessara starfsmanna verður í Suðurmiðstöð og Vesturmiðstöð.
Starfið felur í sér mikla viðveru í leikskólum. Starfsmaður farteymis verður ca 4 vikur í senn með viðveru í ákveðnum leikskólum þar sem illa hefur gengið að ráða starfsmenn til að sinna stuðningi við börn þegar skóli hefur fengið úthlutað fjármagni. Hlutverk starfsmanns farteymis er að koma af stað íhlutun fyrir ákveðin börn.
Starfsmaður farteymis annast faglega ráðgjöf og stuðning við starfsmenn leikskóla vegna barns/barna sem þurfa sérstakan stuðning og starfa samkvæmt hugmyndafræði um skóla fyrir alla.
Í skóla- og frístundadeild starfar öflugur hópur fagfólks sem sinnir þjónustu við leik- og grunnskóla og frístundastarf í borginni. Þverfagleg samvinna er í miðstöðvum og leitum við að fagmönnum til að vinna með okkur í verkefninu "Betri borg fyrir börn" með það að markmiði að koma sem best til móts við þarfir barna í borginni. Unnið er eftir stefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum "Látum draumana rætast."
Skóla- og frístundadeild Suðurmiðstöðvar er staðsett í Álfabakka 10 í Mjódd og Skóla- og frístundadeild Vesturmiðstöðvar er staðsett við Austurstræti.
Umsókn fylgi rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið, yfirlit yfir nám og fyrri störf.
Um er að ræða 100% störf sem eru laus frá 1. september nk.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
- Að skipuleggja stuðningsáætlun við barn/börn í leikskólum.
- Að innleiða stuðningsáætlun í samstafi við starfsfólk, foreldra og sérkennslustjóra
- Að nýta niðurstöður greininga við útfærslu markvissrar íhlutunar.
- Að vera í samvinnu við teymi barna sem verið er að veita stuðning.
- Þróun faglegs samstarfs og þátttaka í samstarfi fagstétta sem vinna með börnum í borgarhlutanum.
- Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s á sviði kennslu- og uppeldisfræði, í þroskaþjálfafræðum eða sambærilegu námi sem nýtist í starfi.
- Framhaldsmenntun er kostur.
- Starfsreynsla í leikskóla er skilyrði.
- Þekking og reynsla af starfi með börnum með frávik í þroska og hegðun.
- Reynsla af þjálfun/íhlutun út frá gagnreyndum aðferðum.
- Lipurð og færni í samskiptum, samstarfi og sveigjanleiki í starfi.
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og löngun til þess að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Íslenskukunnátta (B2 í samræmi við sam evrópskan tungumálaramma).












