

Kennari í sviðslistum í Álfhólsskóla 2025-2026
Við í Álfhólsskóla leitum að skapandi, faglegum og áhugasömum kennara í sviðslistarkennslu á yngsta stigi fyrir skólaárið 2025-2026.
Í Álfhólsskóla eru um 600 nemendur í 1.-10. bekk og um 130 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt". Skólinn er jafnframt Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli.
Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.
- Kennsla í sviðslistum á yngsta stigi
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Reynsla og þekking á kennslu í sviðslistum
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.












