Do you want to translate non-english job information to English?
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Tónmenntakennari í Hofsstaðaskóla

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir tónmenntakennara í 1. - 7. bekk skólaárið 2025 - 2026. Í skólanum eru 480 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 90 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur og sinnir námi og kennslu í tónmennt
  • Sér um samsöng nemenda
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu með öðrum kennurum og fagaðilum sem koma að nemendum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Sérhæfing í kennslu í tónmennt í grunnskóla
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla
  • Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum og góð tölvukunnátta
  • Lipurð og færni í samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
  • Þekking á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar er æskileg
Advertisement published11. March 2025
Application deadline27. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Skólabraut 154520, 675 Raufarhöfn
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags
Would you like some cookies? Alfred uses cookies to analyze traffic on the web and improve your experience. See more.