

Íþróttafræðingur á Landakoti
Laust er til umsóknar 50% starf íþróttafræðings í ótímabundið starf í sjúkraþjálfun á Landakoti. Á Landakoti fer fram sérhæfð og þverfagleg endurhæfing fjölbreytts hóps sjúklinga. Lögð er áhersla á greiningarvinnu, fagþróun, kennslu og þverfaglegt samstarf. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og boðið verður upp á markvissa innleiðingu í starfið hjá reyndum íþróttafræðingi og sjúkraþjálfurum.
Í Sjúkraþjálfun á Landspítala er lögð rík áhersla á fagþróun og símenntun, þátttöku í rannsóknum og öflugt þverfaglegt samstarf. Vellíðan starfsfólks er í forgrunni og hlúð er að jákvæðu og hvetjandi starfsumhverfi. Boðið er upp á 36 stunda vinnuviku í 100% starfi með það að markmiði að stuðla að betri heilsu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs, með bættri nýtingu vinnutíma og gagnkvæmum sveigjanleika sem nýtist bæði starfsfólki og vinnustaðnum. Einnig eru í boði samgöngusamningur og önnur starfstengd fríðindi.
Unnið er í dagvinnu og er starfið laust frá 1. mars 2026
- Auka eða viðhalda færni sjúklinga í samráði við sjúkraþjálfara
- Hvetja til hreyfingar og skipuleggja starf því tengt
- Aðstoða sjúkraþjálfara við meðferð sjúklinga
- Skráning og skýrslugerð
- Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þverfaglegum teymum
- Þátttaka í fagþróun og umbótastarfi
- BSc próf í íþróttafræði
- Viðbótarnám eða framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af styrktarþjálfun eldra fólks
- Reynsla í þverfaglegu endurhæfingateymi
- Reynsla af hóp- og einstaklingsfræðslu
- Áhugi að tileinka sér vinnubrögð með nýjustu tæki
- Góð íslenskukunnátta
Icelandic










































