
Ekki Gefast Upp leitar að þjálfurum/leiðbeinendum á sviði íþrótta og tómstunda
Hefur þú ástríðu fyrir því að vinna með ungu fólki? Viltu nota styrkleika þína, hugmyndir og áhuga til að láta gott af þér leiða?
Ekki Gefast Upp er samfélagslegt verkefni sem vinnur að því að efla líkamlega, andlega og félagslega líðan ungmenna. Til okkar kemur fjölbreyttur hópur ungmenna á aldrinum um 13–20 ára sem glímir meðal annars við
- kvíða og þunglyndi,
- félagslega einangrun
- hafa ekki fundið sig í hefðbundnu íþrótta/tómstundastarfi.
Vegna aukinnar eftirspurnar og stækkandi starfsemi leitum við að bæði þjálfurum fyrir líkamsrækt ásamt leiðbeinendum fyrir önnur og fjölbreyttari námskeið þar sem áhersla verður lögð á að auka við virkni og félagslega vellíðan einstaklingsins í gegnum tómstundir og áhugamál. Við leitum að aðilum með hjartað á réttum stað sem brenna fyrir það að láta gott af sér leiða. Einstaklingum sem hafa sérstakan áhuga á því að styðja við og efla líkamlega, félagslega og andlega líðan ungmenna.
Hæfniskröfur
- Hafa ástríðu fyrir því að vinna með ungu fólki
- Menntun eða reynsla sem að nýtist í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð hæfni og áhugi til þess að vinna í teymi
- Hreint sakavottorð
Mikil kostur ef viðkomandi:
- Hefur bakgrunn á sviði íþrótta, tómstunda eða öðru félagsstarfi
- Talar fleiri tungumál en íslensku
Icelandic
English










