Hjúkrunarfræðingar á bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma
Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga á bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma 32A í 80-100% vaktavinnu. Vinnufyrirkomulag getur verið sveigjanlegt.
Markhópur deildarinnar eru einstaklingar með tvíþættan vanda; alvarlega geðsjúkdóma og alvarlegan vímuefnavanda.
Bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma heyrir undir meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma en undir eininguna heyra einnig dagdeild, göngudeild, vettvangsgeðteymi og afeitrunardeild.
Um er að ræða spennandi og gefandi starf þar sem unnið er í þverfaglegum teymum. Áherslur í starfinu eru meðal annars skaðaminnkun, batamiðuð hugmyndafræði, áhugahvetjandi samtal og geðlæknisfræði.
Góður starfsandi er á deildinni og sinna hjúkrunarfræðingar lykilhlutverki í starfseminni. Starfsemin er í stöðugri framþróun og unnið er að fjölbreyttum umbótaverkefnum.
Á deildinni eru mikil tækifæri til vaxtar og sérhæfingar. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð. Bæði er leitað að reynslumiklum hjúkrunarfræðingum sem og hjúkrunarfræðingum sem eru að stíga sín fyrstu skref í geðhjúkrun.
Unnið er á þrískiptum vöktum og er vaktabyrði hófleg. Ráðið er í starfið frá 1. desember 2024 eða eftir samkomulagi.