Hjúkrunarfræðingur við umsjón útskrifta á lungnadeild
Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi til starfa við skipulag og umsjón með útskrift sjúklinga lungnadeildar í Fossvogi í 40-60% starfshlutfall á móti öðrum hjúkrunarfræðingi í svona stöðu. Um er að ræða dagvinnu virka daga og er starfið laust frá desember 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Möguleiki er á starfi í hærra starfshlutfalli á deildinni, t.d. í vaktavinnu á móti umsjón með útskriftum.
Lungnadeild er bráðalegudeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungnadeildin á landinu. Þjálfun og fræðsla er í fyrirrúmi á deildinni og mörg námstækifæri. Á deildinni starfa um 70 manns í þverfaglegu teymi. Starfsandi á deildinni er mjög góður og tekið er vel á móti nýju fólki. Við leggjum okkur fram við að þjónustan við skjólstæðinga okkar sé til fyrirmyndar, öryggi þeirra sé tryggt og að þeim sé sýnd hlýja og umhyggja.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í .