Starfsmaður í Hljómafli, tónsmiðju á Laugarásnum meðferðargeðdeild
Við á Laugarásnum meðferðargeðdeild leitum að áhugasömum, metnaðarfullum og hæfileikaríkum einstaklingi til að starfa með notendum þjónustunnar að tónlistartengdum hugðarefnum í Tónlistarsmiðjunni Hljómafli. Frá árinu 2013 hefur Laugarásinn boðið upp á Hljómafl sem eitt af sínum meðferðar- og virkniúrræðum. Verkefnið er unnið eftir breskri fyrirmyndi sem nefnis Key Changes. Markmið þess er að gefa einstaklingur með geðrofssjúkdóma tækifæri til að tjá sig í gegnum tónlist, efla styrkleika þeirra, draga úr einangrun og styðja félagslega þátttöku.
Laugarásinn sinnir ungum einstaklingum með geðrofssjúkdóm á byrjunarstigi. Þar er unnið fjölbreytt og sérhæft starf í snemmíhlutun geðrofssjúkdóma fyrir einstaklinga á aldrinum 18-35 ára. Á deildinni eru 8 sólarhringspláss en að stærstum hluta er starfsemi deildarinnar dagdeild þar sem um 100 einstaklingar sækja þjónustu.
Starfsemi Laugarássins er í stöðugri þróun og er áhersla lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og virkt samstarf við aðstandendur. Á deildinni starfa um 40 manns og einkennist samstarfið af þverfaglegri nálgun, krefjandi greiningarvinnu og góðum starfsanda. Á deildinni er lagt mikið upp úr fræðslu og handleiðslu starfsmanna. Einnig er mikið lagt upp úr virku umbótastarfi og lögð er áhersla á virka þátttöku starfsmanna þegar kemur að því að þróa og bæta þjónustuna.
Óskað er eftir starfsmanni í 50% starf. Ráðning er frá 15.11.2024 eða eftir nánara samkomulagi.