Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Hjúkrunarfræðingur

Við leitum að hjúkrunarfræðingi í 80 - 100% starf á hjúkrunardeild okkar. Deildin er 14 rúma legudeild og unnið er á þrískiptum vöktum og einstaka helgar.

Starfið er laust frá og með 1. janúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi.

Á Reykjalundi starfar hópur framúrskarandi hjúkrunarfræðinga á átta þverfaglegum teymum þar sem áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafar, sálfræðingar, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, næringarfræðingar, íþróttafræðingar, talmeinafræðingar, sjúkraliðar og læknar. Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug. Vinnuvikan fyrir fullt starf er 36 stundir.

Hæfnikröfur:

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi gefið út af embætti landlæknis.
  • Þekking af endurhæfingarhjúkrun er kostur.
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.

Laun byggja á kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja velferðarþjónustu auk stofnanasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjalundar.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um starfið veita Helga Pálmadóttir deildarstjóri og sviðsstjóri hjúkrunar í síma 585-2105 eða í gegnum netfangið helgap@reykjalundur.is og Guðbjörg Gunnardóttir mannauðsstjóri í gegnum netfangið gudbjorg@reykjalundur.is

Advertisement published21. October 2024
Application deadline4. November 2024
Language skills
IcelandicIcelandicVery good
Location
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Ambition
Work environment
Professions
Job Tags