Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Sjúkraliði

Við leitum að sjúkraliða í 80 - 100% starf á hjúkrunardeild okkar. Deildin er 14 rúma legudeild og unnið er á þrískiptum vöktum og einstaka helgar.

Starfið er laust frá og með 1. janúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi.

Á Reykjalundi starfar hópur framúrskarandi sjúkraliða. Unnið er í þverfaglegri teymisvinnu þar sem áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug.

Hæfnikröfur:

  • Íslenskt starfsleyfi gefið út af embætti landlæknis.
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
  • Jákvæmtt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæpi, áhugi og metnaður í starfi.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu auk stofnanasamnings Sjúkraliðafélags Íslands og SFV.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteini og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um starfið veita Helga Pálmadóttir deildarstjóri og sviðsstjóri hjúkrunar í síma 585-2105 eða í gegnum netfangið helgap@reykjalundur.is og Guðbjörg Gunnarsdóttir í gegnum netfangið gudbjorg@reykjalundur.is

Advertisement published21. October 2024
Application deadline4. November 2024
Language skills
IcelandicIcelandicVery good
Location
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Paramedic
Work environment
Professions
Job Tags