Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Virknifulltrúi

Hrafnista Hraunvangi óskar eftir að ráða til sín virknifulltrúa í 80% starf. Um er að ræða nýtt og spennandi starf hjá Hrafnistu. Markmið starfsins er að auka þjónustu við íbúa tengt virkni og félagsstarfi á hjúkrunardeildum heimilisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hvetja íbúa til virkni og þátttöku ásamt utanumhaldi um íbúa á viðburðum innan sem utan deildar
  • Ber ábyrgð á framkæmd og utanumhaldi um Namaste stundum
  • Félagslegur stuðningur við íbúa t.d. með lestri á deildum og með því að kynna sér áhugamál hvers og eins.
  • Sér um hina ýmsu viðburði innan deildar
  • O.fl.
Ath. Starfið verður í sífelldri þróun og mótun að þörfum deildar/heimilisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi skilyrði
  • Gott vald á íslensku skilyrði
  • Reynsla sem nýtist í starfi kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Advertisement published18. October 2024
Application deadline27. October 2024
Language skills
IcelandicIcelandicExpert
Location
Hraunvangur 7, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags