

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður í móttöku bráðamóttöku
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður óskast til starfa í móttöku bráðamóttöku í Fossvogi. Bráðamóttaka Landspítala sinnir móttöku bráðveikra og slasaðra og er opin allan sólarhringinn. Í boði er spennandi starf í krefjandi og líflegu starfsumhverfi og góður starfsandi. Unnið er á þrískiptum vöktum og er starfið laust 5. ágúst 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Við viljum ráða jákvæðan og þjónustulipran einstakling með góða samskiptahæfni sem er tilbúinn að vinna undir álagi. Góð íslensku- og enskukunnátta er áskilin.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir sem getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.






















































