Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Verkefnastjóri velferðarþjónustu – Þátttakandi í þróun og árangri

Vilt þú hafa áhrif á samfélagið og leiða verkefni sem skipta máli?

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum og framsýnum verkefnastjóra sem býr yfir sveigjanleika og aðlögunarhæfni til að leiða fjölbreytt þróunarverkefni með skýra sýn á árangur og umbætur í velferðarþjónustu borgarinnar.

Um fullt starf er að ræða og heyrir starfið undir ráðgjafarþjónustu á skrifstofu velferðarsviðs. Skrifstofa velferðarsviðs er Regnbogavottaður vinnustaður. Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn hvatt til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða þróun og innleiðingu verkefna á sviði félags- og velferðarþjónustu – verkefnin eru fjölbreytt og breytileg eftir þörfum samfélagsins hverju sinni.
  • Móta og fylgja eftir árangursmælingum, umbótaverkefnum og nýjungum í þjónustu.
  • Taka virkan þátt í teymisvinnu þvert á svið og stofnanir með áherslu á samþættingu og samráð.
  • Tryggja að rödd notenda og hagsmunaaðila heyrist í allri stefnumótun og framkvæmd verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi sem félagsráðgjafi, framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
  • Yfirgripsmikil þekking og reynsla á málaflokkum velferðarþjónustu, svo sem félagslegri ráðgjöf, virkni, þjónustu við innflytjendur og flóttafólk, fátækt o.fl.
  • Þekking og reynsla af verklagi og þjónustukerfum miðstöðva Reykjavíkurborgar er kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun og þróunarvinnu með áherslu á umbætur og árangursmat.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfileiki til að leiða samstarf ólíkra hópa og hagsmunaaðila.
  • Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Advertisement published19. June 2025
Application deadline1. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Public administration
Work environment
Professions
Job Tags