

Sérfræðingur í unglingamálum
Slysavarnafélagið Landsbjörg óskar eftir að ráða sérfræðing í unglingamálum sem hefur brennandi áhuga á æskulýðs- og björgunarstarfi.
· Sinna daglegum samskiptum við einingar félagsins vegna unglingamála
· Umsjón með þróun námskeiða fyrir unglingadeildir og umsjónarmenn í samvinnu við Björgunarskólann
· Skipulagning og utanumhald landsmóta unglingadeilda, umsjónarmannafunda og miðnæturíþróttamóta
· Heimsóknir og ráðgjöf til unglingadeilda og umsjónarmanna unglingadeilda
· Uppfærsla efnis um unglingamál á vefum félagsins
· Vinna með nefnd um unglingamál og ungmennaráði félagsins
· Tengiliður félagsins við Æskulýðsvettvanginn, innlent og erlent samstarf á sviði unglingamála
· Önnur ótalin verkefni sem snúa að unglingamálum og öðru hjá félaginu
· Menntun sem nýtist í starfi
· Þekking á æskulýðsstarfi og unglingastarfi björgunarsveitanna
· Að hafa starfað með unglingum er kostur
· Góð skipulagshæfni
· Almenn tölvukunnátta
· Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
· Reynsla af verkefnastjórnun
· Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
· Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
· Hreint sakavottorð













