

Aðstoðardeildarstjóri á kvenlækningadeild
Við leitum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með brennandi áhuga á hjúkrun, stjórnun, gæða- og umbótastarfi, í starf aðstoðardeildarstjóra.
Starfið er laust frá 1. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða starf í dagvinnu að mestu og er starfshlutfall 90-100%.
Kvenlækningadeild er 20 rúma og er í senn legudeild, dag- og göngudeild þar sem bráðatilfellum kvensjúkdóma er sinnt sem og konum með góðkynja og illkynja sjúkdóma í grindarholi og brjóstum. Deildin heyrir undir kvenna- og barnasvið og starfa þar um 60 manna hópur hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, skrifstofufólks auk sérhæfðs starfsfólks og felur starfið í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við fjölmargt fagfólk spítalans. Starfið felur m.a. i sér yfirumsjón með starfsemi göngudeildar kvenlækninga. Umfang göngudeildar hefur farið ört vaxandi síðustu árin og veitir starfið því einstakt tækifæri til að taka þátt í þróun og umbótum á starfseminni.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með stjórendateymi og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.


























































